A-lið gerði 4-4 jafntefli við ÍR í leik þar sem þær voru klárlega betri liðið. Við héldum boltanum vel og voru allar stelpurnar gríðarlega duglegar, sérstaklega að aðstoða hvor aðra varnarlega. Leikurinn fór að mestum hluta fram á vallarhelmingi ÍR en þær beittu skyndisóknum sem skilu sér í 4 mörkum. Ósanngjarnt jafntefli þar sem við áttum sigur skilið en þetta var án efa besti leikurinn sem ég hef séð liðið spila, með því að halda áfram að byggja ofan á vinnuna úr þessum leik verður þetta mjög skemmtilegt sumar.
B-lið gerði 2-2 jafntefli, eftir að hafa verið undir tveimur mörkum í hálfleik komu stelpurnar sterkar til baka í seinni hálfleik og jöfnuðu leikinn. Í þessum leik eins og með A-liðið voru stelpurnar betri aðilinn í leiknum, þær héldu boltanum ágætlega og áttu frábærar sóknir með góðri spila mennsku. Það var kannski of stór biti að lenda tveimur mörkum undir í byrjun en stelpurnar sýndu styrk og héldu áfram að spila sinn leik og uppskáru jafntefli í lokinn, þó svo að sigur hefði sanngjarn.
Bæði lið sýndu mikinn vilja styrk eftir að hafa lent undir. Spilamennskan og baráttan var til fyrirmyndar hjá báðum liðum og vonandi átta stelpurnar á sig hvað þær þurfa að leggja á sig til að spila vel. Var mjög stoltur af öllum í dag og vonast til að sjá áframhald á þessum vilja og dugnaði.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli