A-lið tapaði 1-3 gegn Fylki í mikklum baráttu leik. Eftir að hafa lennt marki undir komu stelpurnar sterkar til baka og jöfnuðu leikinn. Við vorum svo óheppnar að fá dæmt gegn okkur víti og síðan kláraði Fylkir leikinn með þriðja markinu. Það var augljóst að stelpurnar væru að berjast með öllu sem þær höfðu en því miður voru þær ekki samstíga í því og lenntum við of oft í því að vera ein gegn tveimur og var okkur refsað fyrir vikið.
C-lið tapaði 1-7 gegn Fylki þar sem að við byrjuðum mjög illa. Við náðum að komast meira inn í leikinn þegar á leið en erfið byjun hafði gert bilið of mikið. Ég var ágætlega ánægður með seinni hálfleik þar sem stelpurnar virtust tilbúnar í slaginn og ef við hefðum getað verið þannig alveg frá byrjun þá hefði þetta orðið mun jafnari leikur.
B-lið tapaði 0-4 gegn Fylki í leik sem hefði getað farið betur, við byrjuðum illa og áttum erfitt með að koma til baka eftir það. Þegar kom að síðasta sóknar þriðjung þá héldum við boltanum ekki nægilega vel til að ná góðu skoti að marki, þar af leiðandi gekk illa að skora. svipað og hjá A og C liðunum þá var liðs vinnslan ekki nægilega góð og spilað er of auðveldlega framhjá okkur þegar við verjumst ekki saman sem ein heild.
Tveir hlutir sem við þurfum að hafa í huga, first er að dómarinn sér um að dæma leikina, hann getur auðveldlega gert mistök alveg eins og við sjálf og það að fara ætla segja honum til er ekki að fara hjálpa liðinu okkar á neinn hátt. Annað sem við gerðum svo vel í síðustu viku gegn ÍR var að vinna sem lið þegar kom að varnarleiknum og fyrir vikið fáum við boltan meira til að spila fótbolta, það vantaði hjá öllum liðunum gegn Fylki og það var of oft sem við horfðum á eina úr liðinu vera að pressa leikmann sem var með bolta án þess að aðstoða á neinn hátt. Eitt sem við meigum muna og það er að við sigrum leiki sem lið, en auðveldast er að tapa leikjum sem einstaklingur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli